
Félag áhugafólks um tréskurð á þrítugsafmæli 2026 og hefur samþykkt að fagna tímamótunum með sýningu sem umtalsvert meira yrði lagt í en gerist og gengur á hefðbundnum vorsýningum félagsins. Til að mynda yrðu tveir fyrrverandi heiðurslistamenn Kópavogs, báðir listamenn í tré og stein, kynntir sérstaklega og verk þeirra: Wilhelm Beckmann, fyrsti heiðurslistamaður Kópavogs, 1954, og Jón Adolf Steinólfsson, heiðurslistamaður 2015.
Stjórn Stofnunar Wilhelms Beckmanns samþykkti 2024 að styðja sýningarhaldið og taka þátt í tímamótunum í minningu Beckmanns. Hvergi ætti sýning sem tengist Wilhelm Beckmann betur heima en í safnaðarheimilinu Borgum. Utan dyra þar blasir við Kona, eina myndverkið úr steini sem Beckmann gerði á Íslandi, í anddyrinu er altaristafla eftir Beckmann frá 1954 og í Fundarherbergi eru munir eftir Beckmann eða tengdir fjölskyldu hans.
Skemmst er frá að segja að sóknarprestur og formaður sóknarnefndar tóku erindi gestanna þriggja afar vel. Niðurstaðan er sú að afmælissýning FÁT verður í safnaðarheimilinu Borgum laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. apríl 2026.
Í óformlegu framhaldskrunki Víðis, Jóns Adolfs og Atla Rúnars á bílastæðinu að eiginlegum fundi loknum voru viðraðar ýmsar hugmyndir, meðal annars að opna sýninguna með dálítilli viðhöfn laugardaginn 25. apríl kl. 11 og hafa opið báða daga frá kl. 11 til 17.
FÁT fær allan samkomusalinn til umráða og anddyrið líka. Þarna er hljóðkerfi, sýningartjald og tilheyrandi tæki til að sýna ljósmyndir og kvikmyndir. Þarna eru með öðrum orðum aðstæður og möguleikar til að búa til magnaða afmælissýningu og vandaðan viðburð sem hæfir tilefninu.
Ástæða er til þess að þakka sóknarpresti og formanni sóknarnefndar fyrir afar jákvæð viðbrögð, mikinn áhuga og hvatningu.



Hjörleifshöfði
Einstakt tækifæri sem hefur rekið á fjörur okkar hjá FÁT.
Félagar í Félag áhugamanna um tréskurð á Íslandi hafa einstakt tækifæri á því að taka þátt í einstökum og stórum menningarviðburði í Víkingagarðinum við Hjörleifshöfða með verkefnum tengt útskurði í tré og steini.
Eigendur ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Park Iceland eru þrír frumkvöðlar með skýra framtíðarsýn og sterkar rætur í Mýrdalshreppi. Hjá þeim er sérstök áhersla lögð á að kynna sögu svæðisins og landnáms Hjörleifs Hróðmarsson. https://vikingpark.is/
Áhugasamir félagar sem vilja koma að þessu spennandi verkefni, hafið samband við mig Hjörtur Árnason – treskurd@gmail.com
Dagur 5
Vielen Dank, lieber Markus, für all die Lektionen und Anleitungen.
Dagur 5 á námskeiði hjá Markus Flück í húsakynum hjá Jón Adólf. Lokadagur á frábæru tréskurðarnámskeiði. Góður félagsskapur og frábær kennsla. Allir sáttir. Kærar þakkir fyrir okkur kæri Markus.
Dagur 4
Tréskurður með Markus Flück
Dagur 4 á námskeiði hjá Markus Flück í húsakynum hjá Jón Adólf.
Nemendur fengu kennslu í tréskurði, lágmyndum, fígúrur og útskurði á andlitum. Góður dagur og nemendur sýna mikla framför í tréskurði.
Dagur 3
Tréskurður með Markus Flück
Dagur 3 á námskeiði hjá Markus Flück í húsakynum hjá Jón Adólf.
Nemendur fengu kennslu í tréskurði, lágmyndum, fígúrur og útskurði á andlitum. Nokkrir nemdur mættu með verkefni að heiman sem Markus leiðbeindi með. Góður dagur og nemendur sýna mikla framför í tréskurði.
Dagur 2
Tréskurður með Markus Flück
Dagur 2 á námskeiði hjá Markus Flück í húsakynum hjá Jón Adólf.
Nemendur fengu kennslu í tréskurði, lágmyndum, fígúrur og útskurði á andlitum. Nokkrir nemdur mættu með verkefni að heiman sem Markus leiðbeindi með.
Dagur 1
Tréskurður með Markus Flück
Námskeiðið hafið hjá Markus Flück í húsakynum hjá Jón Adólf.
Dagur 1. Lágmynd, fígúrur og andlit.
Fréttir og Dagskrá
Markus Flück er mættur til landsins.
Markus mun halda námskeið í tréskurði dagannar 25.9 - 1.okt., Markus er Svissneskur tréútskurðarkennari og listamaður. Því miður þá er námskeiðið fullbókað að þessu sinni.
Markus Flück er með Instagram síðuna: https://www.instagram.com/markusflueck/
Eftirfarandi mynd er af Markus Flück, eiginkonu hans SoNia Flück Tigani og dætrum þeirra hjóna, ásamt Jón Adólf.
Þetta er mitt Frón
Íslensk heimildarmynd frá 2022 um þýska tréskurðarmeistarann og myndhöggvarann Wilhelm Beckmann, sem flúði undan nasistum á fyrri hluta síðustu aldar. Hann settist að á Íslandi og gerðist atkvæðamikill kirkjulistamaður.