
Karlar í Skúrum - Mosfellsbæ
Karlar í Skúrum í Mosfellsbæ buðu félaga í FÁT velkomna til sín í opið hús, 21.mars 2026. Félagar fjölmenntu til að skoða aðstöðuna og forvitnast um þennan félagsskap. Páll Steinþórsson félagi okkar í FÁT og Jón B. Guðmundsson formaður buðu gesti velkomna. Jón fræddi okkur um tilurð og upphaf félagsins og sagði skemmtilega frá. Gestum var boðið uppá kaffi og kruðerí. Húsnæðið og aðstaðan er til fyrirmyndar, vel tækjum búið og vel hugsað fyrir öllu. Við félagar hjá FÁT þökkum kærlega fyrir okkur.

Opið hús hjá Hrefnu
Hrefna Aradóttir var með Opið hús fyrir félagsmenn FÁT, 8. febrúar 2025. Hrefna og eiginmaður hennar hafa byggt upp myndarlegt hús við húsið sitt, þar sem Hrefna nýtur sín við listræna sköpun, tálgar styttur og býr til skúlptúra og brúðuleikmuni. Sérhver hlutur fær hlutverk og fær að njóta sín. Það var sérlega ánægjulegt að fá að heimsækja Hrefnu og fá að kynnast hennar listsköpun. Bestu þakkir

Útgáfuteyti
Útgáfuteyti og opið hús hjá Jón Adólf 7.12.2024
Útgáfa bókarinnar Trélistalíf eftir Atla Rúnar Halldórsson. Tímamóta bókaútgáfa á tréútskurðarlist Íslendinga á síðustu og þessari öld. Myndir frá Jóhönnu Kristínu Hauksdóttir, kærar þakkir.
Sjá myndir frá samkomunni.

Opin Hús 2023
Opin hús hjá Ingólfi Sigurjónssyni og Reyni Sveinssyni 2023
Opin hús 2023
![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() | ![]() |






































































